|
|
29.08.2007 20:26:51 / ingarun
»
27.08.2007 12:02:32 / ingarun
Hmmm...takk fyrir ljúf orð í minn garð! Mér sýnist á öllu að ég geti líklegast ekki þagað út í eytt og fái ekki tjáningarþörf minni fullnægt í daglegu lífi svo ég hugsa að ég bloggi aftur. Nú er bara spurningin HVAR? Ég er löngu komin með upp í kok af blogcentral, og held ég kyngi bara ekki lengur enívei - það sem ég hef hugsað mér að velja á milli er 123.is, mbl.is, eða jafnvel að halda sig við svæðið sitt og notast við vikurfrettir.is. Þið megið gjarna tjá ykkur um kosti og galla umræddra bloggstaða, ef þið hafið prófað þá eða vitið um einhvern sem notar þá og þið hafið heyrt hvernig viðkomandi líkar. Ég held reyndar að mbl. bloggið sé þannig uppbyggt að maður þurfi að vera virkur notandi þar til að geta kommentað hjá öðrum, þá er það frekar hvimleitt. Fólk skal þá gjöra svo vel að þegja eða vera sammála og vera með! (sem, eftir á að hyggja er svolítið blá hugsun) Kannski ég sé þá sjálf búin að útiloka moggabloggið?  Annars er fínt í sveitinni. Tók mér tvo sumarfrídaga f. helgina og í dag er Kamillan með magakveisu (sem betur fer búin að halda þessu niðri í sér samt, eins gott hún gubbi ekki á gólfið, það gæti seytlað niður um rifurnar niður í kjallara...). Krakkarnir okkar voru allir hjá okkur á Sandgerðisdögunum, svo íbúafjöldi tvöfaldaðist í einn sólahring hér í Brautarholtinu (húsið heitir það sko, og var byggt 1937). Það var skemmtilegt og skrautlegt.
»
13.08.2007 17:20:15 / ingarun
Sniðug setning sem segir það sem segja þarf - hvort sem um
afmæli er að ræða eða ekki.
Þetta verður síðasta bloggfærslan mín, því ég nenni þessu ekki
lengur.
Þakka áheyrnina.
Ha det!
»
09.08.2007 10:25:21 / ingarun
Ég grunnaði baðherbergisgólfið í gær. Þurfi fyrst að þrífa
dúkinn MJÖG vel, svo engin fita væri eftir. Ég byrjaði á að
skrúbba með skúrikremi. Svo notaði ég leysigeisla. Og
svo fór ég yfir með sandpappír! Hlýtur að vera nógu gott
Svo grunnaði ég sem sagt, svo að ég get farið að lakka í dag!
JEI
Svo er kertafleyting í kvöld við Tjörnina í Reykjavík (og
á Akureyri reyndar), til minningar þeirra sem fórust í
Hiroshima. Ég hef aldrei orðið svo fræg að taka þátt í því,
en í kvöld mætum við Kamilla galvaskar (og kannski Hrólfur líka ef
hann verður búinn að vinna) og ætlum líka að selja kerti.
»
07.08.2007 22:45:48 / ingarun
Við tókum
okkur frí á föstudaginn og lögðum af stað austur á Höfn á
fimmtudagskvöldið. Við vorum með þrjú börn
(af fjórum!) með okkur. Held við höfum
verið að fara úr Reykjavík um miðnætti eða
svo. Það var mjög þægilegt upp á það að
gera að það var nánast engin umferð
J
Og þvílík litbrigði sem við sáum á
himninum. Alveg
stórkostlegt.
Þegar við komum
til Nínu og Binna tók Snerra á móti okkur, alveg himinifandi!
Heimilisfólkið og hin tíkin sváfu á sínu græna.
Við komum krökkunum fyrir inn í stofu en við fengum
gestaherbergið. Á laugardeginum fórum við
Nína á bak. Ég fór reyndar ekki á Fjalar því
hann var á beit uppi í Lóni, en ég fékk að prófa Ófeig hennar
Nínu. Ég prófaði nýja fína hnakkinn minn og varð
fyrir vonbrigðum! L
Jebbs, þó það sé gott að sitja í honum á
þykjustunni hesti í búð, þá er öðruvísi að sitja hann á lifandi
hrossi. Nú er ég að hugsa um að festa mér skásta
hnakkinn sem ég hef prófað á lifandi hrossi það er hnakkurinn
hans Hrólfs. Hann getur þá selt þennan og keypt
sér annan. Hann langar hvort eð er að endurnýja
Á laugardagskvöldinu fórum við út í Flatey.
Pabbi og Kiddý lánuðu okkur fellihýsið
sitt svo við gátum gist þar. Þegar við
komum á svæðið voru allir löngu búnir að borða og grillin
voru orðin köld. Við vorum alveg heillengi
að grilla! Held ég hafi aldrei lent í öðru
eins. Mjög fyndið. Svo
var bara setið og kjaftað. Og spilað og
hlegið og allur
pakkinn.
Pabbi hafði
látið okkur fá almennilegt stykki af hákarli sem við bárum
fyrir fólkið. Þvílíkt
lostæti! Bræðurnir höfðu gert sér
lítið fyrir og leigt hoppukastala svo að börnin voru meira en
lítið kát.Það var alveg voðalega gott
að sofa í fellihýsinu. Fyrri nóttina var
svolítill vindur svo að maður ruggaði í svefn, ekkert ósvipað
og úti á sjó. Sem er – by the way – besti
staðurinn til að sofa
á.Á sunnudeginum var auðvitað safnað í
brennu. Krakkarnir fengu allir að prófa
traktorinn og svona. Rosa
stuð.
Helgin var
alveg meiriháttar fín. Nína sagði okkur eina ferlega fína
sögu. Sem við snérum auðvitað aðeins út úr
hehehe... Sko. Hún lék í mynd, eða það
sást í “neðri líkamann á henni” í myndinni “Vírus í paradís”
. VÍRUS Í PARADÍS!!!
Okkur fannst nú frekar skondið og enn fyndnara þegar hún var
spurð hvaða mynd það hafi eiginlega verið og hún svaraði: “Æ,
hún var þýsk eða frönsk eða eitthvað”. Svo
ég spurði hvort henni hefði verið bannað að raka sig í x tíma
á undan tökum!! HAHAHAHAHA Við lágum alveg
í kasti yfir þessu. Útskýringin var svo
ekkert fyndin þannig að ég er ekkert að minnast á
hana. Og punkturinn yfir i-ið er
að kallinn hennar er sonur rakarans og
hafði kvittað þannig undir í gestabókina!!!
HAHAHAHAAHAAHAHHA.
»
02.08.2007 09:28:02 / ingarun
Ég varð agalega hneyksluð í gær. Ég var úti í umferðinni eins
og flesta daga. Rak augun í ökukennslu-bíl. Ég vorkenni
alltaf svolítið greyjunum sem eru að læra. Allavega rifjast
upp hjá mér, þegar maður var að keyra í bænum og fannst allir vera
að fylgjast með sér - kemst hún af stað í brekkunni án þess að
renna á bílinn fyrir aftan? o.s.frv.  ENÍVEI!
Ökukennarar eru að kenna unga fólkinu (í flestum tilfellum) a)að
keyra b)umferðarreglurnar c)hvernig maður hegðar sér í
umferðinni. Svo að það sem hneykslaði mig í gær, var að ég sá
ökukennara, sem sat við hliðina á nemandanum sem var að
keyra. Og á öxl kennarans var lítill hundur! Í
afturglugganum var annar hundur!! Mér finnst þetta vítavert
kæruleysi. Hvorki dýr eða menn eiga að vera laus í
bílum. Ef harður árekstur verður, valda laus dýr miklum skaða
(burtséð frá því hvort þau svo lifa það af eða ekki).
»
01.08.2007 08:47:53 / ingarun
Í vinnunni í gær þurfti ég ekkert að fara út af skrifstofunni
fyrr en vinnutíma mínum var lokið. Þ.e. ég þurfti ekki að
fara til borgarinnar Þvílíkur léttir! Bæði af því að
þá sá ég fram á að geta lokið vinnunni þegar ég átti að vera búin
að vinna og eins er alltaf svolítið erfitt að halda sér vakandi á
Brautinni á heimleið seinni part dags. Held svo sem að
Brautin sé ekki aðalmálið hvað það varðar, heldur
tímasetningin. Það koma alltaf tímar seinni part dagsins þar
sem ég á mjög erfitt með að halda mér vakandi og það er eiginlega
mjög óheppilegt þegar maður keyrir á 90 á Reykjanesbrautinni þar
sem nauðsynlegt er að vera með öll skynfæri vel vakandi. Eins
og alltaf þegar maður ekur.
En nú er tími til að skella sér í vinnuna og í dag fer ég í
bæinn! Hehehe, reyndar kemst ég fyrr af stað í dag en oft áður svo
að mig syfjar vonandi bara eftir að ég er komin heim...
»
30.07.2007 19:51:16 / ingarun
Það er bara alveg brjálað að gera í vinnunni og ég er
bara uppgefin og rúmlega það!
Mayumi er á leiðinni til mín og við ætlum að kyrja saman.
Mikið er ég þakklát fyrir það! 
»
29.07.2007 20:56:22 / ingarun
Haldið þið að það sé ekki komið að því?! Ég er að mála
lokaumferðina á baðinu!! Um leið er ég að elda
saltkjöt. Ég er svo fjöllynd. Eða sko, fjölHÆF.
Í pottunum er folaldakjöt að ósk pabba.
Þvílíkur fnykur! Jakk - þetta gerir maður nú bara fyrir pabba
sinn. Ég er ekki grænmetisæta en ég verð að viðurkenna að
lyktin af kjöti getur verið virkilega ógeðsleg! Enda borða ég
ekki mikið kjöt. Myndi þó ekki vilja sleppa því, en það er í
lágmarki í mínu mataræði held ég. Ég á það svo sem
alveg til að langa í kjöt. Og gott kjöt er náttúrulega mjög
gott. Fæ enn vatn í munninn þegar ég hugsa um lambalundirnar
sem Einar grillaði ofan í okkur þegar við hittumst hjá Stebba og
Elínu. En þetta er nú samt undantekning.
Talandi um mat.....mmmmmmmmmm....mig langar í sushi!

»
29.07.2007 17:48:04 / ingarun
Ég heiti Inga Rún og ég er aumingi.
Auðvitað ekki fallega sagt um sjálfan sig og alls ekki
búddískt. En það er nú bara nákvæmlega svona sem mér líður
stundum og það er bara út af þessari blessuðu (ath. hér hefði
ég getað sett eitthvað miður fallegt orð - en gerði það
ekki!) gigt. Mér finnst bara fáránlegt að vera 34 ára og
vera með gigt! Að geta ekki gert það sem maður vill þegar
maður vill. Að verða dauðuppgefinn á miðjum degi. Að
geta ekki unnið fullan vinnudag. Að geta ekki sinnt
áhugamálum sínum án þess að taka sér hlé. Að vera endalaust
illt.
AAAAAARG!
Og þetta finnst mér sérlega pirrandi þegar ég átta mig á því á
sunnudegi að helgarnar mínar eru í raun bara einn frídagur, þó
ég sé ekki í vinnu í tvo daga. Ástæðan er einfaldlega sú að
maður er svo uppgefinn eftir vikuna að laugardagurinn er
ónýtur. Hann fer í að reyna að vinna upp orkuna. Hvíla
sig. Vakandi eða sofandi. Glatað. Gjörsamlega
glatað.
Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er fullt af fólki sem
líður mun verr og mér finnst það mjög leiðinlegt, en mér líður bara
ekkert betur við þá tilhugsun.
Ég er heldur ekki í rúminu yfir þessu, þ.e. er ekki að drepast
úr þunglyndi heldur pirringi. Og þá er um að gera að reyna að
fá smá útrás og það geri ég m.a. með því að tjá mig.
Og hafið þið það svo eins og þið viljið 
»
28.07.2007 08:56:58 / ingarun
»
26.07.2007 09:42:45 / ingarun
Ég er aftur orðin
dökkhærð. Skellti í mig lit í gær, reyndar
bara skoli, en er allavega dekkri en ég hef verið í dágóða
stund. Setti líka á mig augabrúnir og fer svo
í klippingu í dag svo að ég er að verða ótrúlega sæt!

Pabbi gisti í gær hjá
okkur. Og bæði hann og Hrólfur vorum komnir á
skikkanlegum tíma heim, svo að það var hægt að borða og spjalla og
hafa það huggulegt í dágóða stund J
Bara æðislegt. Svo sátum við
pabbi tvö og spjölluðum frameftir (á meðan ég var að lita mig –
mjög heimilislegt!) J
En það er sko alveg æðislegt að pabbi er farin
að gista svo oft svo að ég sé hann mun oftar en ég hef gert
lengi. Mér finnst það bara
stórkostlegt.
Ég var að vinna í bænum í gær,
notaði hádegið til að hitta vinkonurnar - Láru og Lindu Líf.
Það var ekkert smá frábært! Það er sko engin lygi að maður er
manns gaman - það er ótrúlega nærandi að eiga og hitta góða
vini. Enginn nýr sannleikur en alltaf gott að rifja þannig
lagað upp svo maður muni hvað maður er heppinn.
Við ætlum að
skella okkur austur um
verslunarmannahelgina. Ég hlakka mikið
til! Það er orðið svo rosalega langt síðan
ég hitti hana elskulegu systur mína. Svo
ætla ég líka að taka nýja, fína hnakkinn minn með mér og
prófa hann á honum Fjalari. Je je
je!
»
23.07.2007 08:17:08 / ingarun
»
22.07.2007 09:49:41 / ingarun
Þann 6.júní í fyrra man ég ekkert hvað ég var að gera. Ég
var allavega ekki á tónleikunum hjá Bubba og ég var heldur ekki að
fylgjast með þeim í sjónvarpinu. Nú er ég aftur á móti búin
að hlusta mikið á plöturnar sem eru afrakstur tónleikanna og
VÁ! Það er nú ekki hægt að segja annað! Meira að segja
"stál og hnífur" sem ég var fyrir mörgum árum komin með ógeð á -
enda ofspilaðasta lag þegar fólk tekur upp gítarinn - er rosalega
flott á þessari plötu. Svo nú er ég oftar en ekki með þetta í
botni (ekki endilega "stál og hníf" bara mín uppáhaldslög af þessum
plötum) bæði í bílnum og hér heima. Og í gærkvöldi þegar ég
var að reyna að koma mér í stuð til að mála setti ég þetta auðvitað
í botn. Fólk hér í kring hefur líklegast haldið að hér væri
standandi partí. Svo nú er þetta í botni líka, enda nýtur
maður þess tífalt betur þannig. Nema hvað, ég sit við
elhúsborðið og sá fólkið hér á móti stíga prúðbúið upp í bíl
(líklegast á leið til messu) og líta hingað skrítnum augum.
Ég er nú ekki með eldhúsgluggann (sem snýr að götunni) opinn, en
ætli það heyrist samt ekki langar leiðir að hér sé tónlist í
botni. Litla gamla húsið mitt (það er sko sjötugt á þessu
ári) er örugglega ekkert mjög vel hljóðeinangrað 
"Ég elska þig svo heitt, að mig sundlar og verkjar. Í
faðmi þínum þú lætur mig finna til sektar"
»
22.07.2007 00:30:46 / ingarun
Jei! Búin með fyrstu
umferðina á baðinu. Tók aldeilis sinn
tíma. Fyrri part dagsins var ég að ljúka við
að mála í hornin og meðfram og svona. Frekar
erfitt sérstaklega í kringum klósettið, því það er afskaplega
lítið pláss þar í kring. Nema hvað, svo þegar
stóð ég aðeins upp (búin að vera að kúldrast við að mála meðfram
sturtubotninum og klósettinu í dágóða stund), og fann þá að ég
gat varla rétt úr mér, alveg að drepast í mjóbakinu í kringum
spjaldhrygginn (mitt uppáhalds). Svo ég sá
fram á að ég yrði að hvíla mig aðeins og lagðist í
sófann. Kveikti bara á sjónvarpinu og slakaði
á. Eftir að hafa horft á Dr. Phil og fengið
upp í kok af “baraörlítiðofmikiðvæmnuamerísku”
sjónvarpsefni ákvað ég að loka augunum. Bara
smá stund. Nema hvað. Ég
svaf hreinlega í sófanum fram á kvöld! Sá
ekki fréttir eða neitt. Svo það skýrir nú
aðeins hvers vegna ég var svona rosalega lengi að klára fyrstu
umferðina á baðinu...hehehehe 
Ég sem ætlaði að
vera svo rosalega dugleg við að stússast hér heima meðan
Hrólfur væri í hestaferðinni (sem er vikuferð). Og ég
er &%##$"((/&%$ ekki búin að gera neitt af
viti. Jæja, ég hef nú reyndar hvílt mig aðeins.
Hef greinilega þurft á því að halda. Það tekur jú
dálítið á að eiga nýja kærasta og vera ástfangin upp fyrir
haus. Þá hefur maður ekki tíma til að sofa eða neitt

Ég er alein
heima núna. Hrólfur er í hestaferð,
Kamilla fékk að gista hjá Drífu vinkonu sinni og kisa er úti.
Svolítið skrítið en líka
ljúft. (Voðalega er þetta skrítið, hér er
ég ítrekað búin að reyna að setja greinarskil en þau bara
koma ekki! Pirrandi!).
Svolítið
fyndið í gær. Hrólfur bað mig að láta
athuga olíuna á jeppanum.
Ég sagðist nú geta gert það bara sjálf.
Svo ég fer út, opna húddið (sem er það þyngsta húdd sem ég
hef nokkurn tíma opnað) og teygi mig til að reyna að sjá
olíukvarðann. Jú, þarna var hann, en ég
náði honum alls ekki. Það endaði með því
að ég þurfti að fara inn og sækja mér upphækkun (æ, svona
pall eins fæst í Ikea og er ætlaður fyrir krakka svo þau nái
upp að vaskinum til að tannbursta sig og svona, ég bara man
alls ekki hvað maður kallar þetta) til að ná honum!
Hehehehe...svolítið - bara örlítið -
kómískt.
»
Síður: 1 2 3 ... 37
|
Dagsetning
9. september 2010
|